Kakkalakkafaraldurshætta
...þessi fyrirsögn hefur nákvæmlega ekkert með innihald þessarar færslu að gera, mér fannst þetta bara svo fyndin fyrirsögn. Ég sver það páskarnir búnir og ég sit hér í eymd og aumingjaskap með hor niður á höku og suð í eyrunum. Það ætti hreinlega að sleppa öllum fríum í skólanum fyrir mig því ég verð alltaf lasin í fríum, alveg ömurlegt.
Svo er bara vinnudagur á morgun. 25 mars á morgun svo það er innan við mánuður þangað til ég fer til Svíþjóðar og Dannmerkur. Sex vikur í Hvannadalshnjúk. Svo eru rétt rúmlega tveir mánuðir þangað til ég kemst í eyjuna mína. Rétt rúmlega þrír mánuðir í Hornstrandir. Já sumarið er bara handan við hornið, alveg sama hvað Soffía veðurfræðingur segir það er vor í lofti.
Trúin flytur fjöll er málshátturinn minn þetta árið. Heppilegur málsháttur á þessum tíma og segir mér að rétt ákvörðun hafi verið tekin, þetta passar of vel til að geta verið tilviljun. Ekkert nema gott um það að segja.
Í dag á ég fermingarafmæli, en ég fermdist akkúrat á þessum degi 24. mars árið 1990 (er það ekki örugglega). Í dag á líka hún Aðalheiður vinkona mín afmæli. Góður dagur. Góður dagur.
Góðar stundir.

3 comments:
At 3:41 PM, Alla said…
Takk fyrir kveðjuna ... en við fermdumst '91 - ekki gera okkkur ári eldri en við erum - það er ekki á það bætandi ;o)
At 4:26 PM, Anonymous said…
Nákvæmlega.... eins og sautján ár séu ekki nóg!!!! Hehehehehehe...
At 4:26 PM, Anonymous said…
Þetta var ég!!!
Soffía
Post a Comment
<< Home