Döpur er dráttlaus kona.

...besti páskamálsháttur ever!!!

Wednesday, June 25, 2008

Nýjustu tilkynningar.

Hér eru nýjustu atburðir úr lífi flakkara Janusar!

- Heimsóknin á Breiðafjörðin var alveg ólýsanleg eins og venjulega. Ég gekk um skerin stundum ein og stundum í félagsskap karlanna minna. Veiddi fisk, klappaði ungum, borðaði egg, drakk bjór, skaut af byssu og spilaði kana fram eftir nóttu. Alveg dásamlegur tími á geggjuðum stað.


- Ég kom heim rétt fyrir skírn hjá systursyni mínum. Hann er yndislegt barn þetta nýjasta eintak. Góð útlitsblanda af bræðrum sínum, algjört yndi. Honum var gefið nafnið Gunnar Páll, nefndur eftir öfum sínum. Við ætlum að kalla hann Palla litla :)

Í vikunni fór ég og skoðaði lokaútgáfu af verkefninu mínu sem fer á vef námsgagnastofnunnar. Hrikalega skemmtilegt að sjá þetta svona eftir meðhöndlun umbrotsmanna. Núna er bara að klára seinni hlutann af verkefninu.

Nú eru einungis fjórir dagar þangað til Hornstrandaferðina þetta sumarið. Fleiri tilkynningar verða sagðar í júlí.

Góðar sumarstundir.

Kristjana