Döpur er dráttlaus kona.

...besti páskamálsháttur ever!!!

Wednesday, May 28, 2008

Litli Stubbur Guðnason




Hérna er hann kominn, svo ossa sætur!!!

Sunday, May 25, 2008

Júróvision á Nasa



Það var alveg hrikalega gaman á Nasa í gærkvöldi. Palli stendur alltaf fyrir sínu :)

Flottar gellur með flottum gæja!

Sunday, May 18, 2008

Hvannadalshnúkur 17. maí 2008



Hvannadalshnúkur er hæsti tindur Íslands, hann er að finna í Öræfajökli sem er svo í Vatnajökli. Eitthvað hefur hæð tindsins verið á reiki og vísan sem maður kunni úr barnaskóla gengur ekki alveg upp lengur, þ.e. Hvannadalshnúkur 2119. Núna segja allar mælingar að Hnúkurinn sé 2110 metra hár. Ég á samt sannanir á mynd að hnúkurinn sé ennþá 2119 metrar :) svo ætla að halda mig við þá tölu.

Maður reif sig lappir klukkan hálf fjögur eftir lítinn svefn því eini hrúturinn í kofanum hraut eins og dráttarvél. Ég var því frekar illa upplögð þarna í morgunsárið. Það leit ekki vel út með veðrið þarna um morguninn því þokan náði niður í miðjar hlíðar á fyrsta hluta leiðarinnar þó úti væri logn og nokkur hiti. Eftir að búið var að borða morgunmat og klæða sig í viðeigandi fatnað var keyrt að eyðibýlinu að Sandfelli þar sem gangan hófst. Fyrsti hluti leiðarinnar var upp Sandfellið sjálft sem teygir sig einhverja 600 metra upp í loftið. Þarna var farið eftir greinilegum stíg í gróinni hlíð. Þokan var enn nokkur og útsýnið niður minnkaði eftir því sem ofar dró. Í 400 metra hæð fyllti maður á vatnsbrúsana sína. Ekki hélt ég nú að ég þyrfti á öllu þessum vökva að halda en ákvað nú samt að hlýða fararstjóranum Smára sem virtist alveg vera með á hreinu hvernig best væri að haga vatnsburði á þessari leið. Ég var því með einn og hálfan líter af vatni þegar uppgangan hófst, þrjár kókómjólk, og tvær litlar dósir með orkudrykk, samtals rúmlega tvo og hálfan líter.

Áfram gengum við upp og áður en maður vissi af var maður komin að snjólínu í 1000 metrum, sem sagt komin upp eina Esju með Úlfarsfell sem húfu. Ennþá vorum við hálf týnd í þokunni, sem var eins og þéttur úði sem gerði mann hálf rakan. Í þessari hæð borðuðum við nesti og notuðum náttúrusalernin og fórum í beltin og svo í línu því ekki er gáfulegt að ganga yfir svæði eins og þetta án þess að vera tryggður í línu. Framundan var svo lengsta beina brekkan á þessari leið, þarna var gengið upp með nokkuð jöfnum halla og hraða í 1800 metra hæð. Ég get verið alveg hreinskilin þegar ég segi að á þessum kafla var ég alveg að bugast. Mér var svo hrikalega heitt því hitinn var farin að stíga upp fyrir 10 gráður og ég var í ullarnærfötum undir flísdótinu, svo var óvenjulangt á milli stoppa þarna svo maður var orðin alveg orkulaus.

Í 1400 metra hæð varð ég svo vitni að algeru kraftaverki ef hægt er að kalla það kraftaverk. Eins og ég sagði var þokan búin að vera að stríða okkur á uppleiðinni og skyggnið var ekki nema svona 50 metrar. Í 1400 metrum fórum við samt að telja okkur trú um að það væri að létta til því sólin var aðeins farin að ylja okkur. Við vorum því stopp og vorum að góna í kringum okkur. Þá eins og hendi væri veifað hvarf þokan á svona einni mínútu, það var hreinlega eins og hún hefði verið ryksuguð burt. Því sá maður all skyndilega í hina hópana sem lengra voru komnir og Hnjúkinn sjálfan sem brosti sínu blíðasta þarna framundan. Það er ólýsanlegt að hafa fengið að verða vitni að þessu. Þokan hvarf ekki, en nú var hún í sirka 1380 metrum og þannig hélt hún sig allan daginn. Maður gekk því þennan seinni hluta ferðarinnar í sólskini, blankalogni og dúndrandi hita…og ég ennþá í ullarbuxunum.

Það var því eins og sleppa úr einangrun þegar farastjórinn gaf mér leyfi eftir að hafa kannað punktinn sem ég stóð á gaumgæfilega að losa mig úr línunni og fara úr þessum fjandans ullarbuxum, ég var svo fúl út í þær að mér hefði verið skapi næst að troða þeim niður í næstu sprungu. Eftir þetta var gangan mun léttari. Nú var ég stödd í 1800 metrum og því ekki framundan nema ca. 310 metra hækkun. Fyrst þurfti þó að fara yfir sléttuna, þó ekki sléttuna sem húsið stóð við, heldur sléttan snjóbala sem tók alveg ótrúlega langan tíma að fara yfir. Eftir tæpan klukkutíma vorum við komin að síðastu hindruninni, hnjúknum sjálfum. Nú vorum við stödd í sirka 1850 metra hæð ef ég man rétt. Fararstjórinn ákvað að við myndum sleppa broddunum, tek ofan af fyrir þeirri ákvörðun hans. Framundan voru nú 250 metrar upp nokkuð bratta hlíð sem nokkrar sprungur rifu í sundur. Þarna fyrir neðan skildum við pokana okkar eftir og óðum að stað. Ég ákvað að ganga þarna upp í úlpu og húfu því það er alltaf kalt á toppnum er það ekki? Ferðin upp þessa metra gekk frekar hægt því það voru fleiri hópar að fara upp á sama tíma og ekki komst nema einn hópur í einu upp þá leið sem í boði er þarna. Það var hrikalega heitt, fljótlega var ég búin að stinga húfunni í vasann á úlpunni og binda svo úlpuna um mittið. Þarna fór líka verulega að sjóða á andlitinu á mér þrátt fyrir að ég hefði borið reglulega á mig allan daginn. En það var ekkert við því að gera á þessum stað annað en að fara upp og snúa rassinum í sólina. Þetta hafðist. Þarna uppi á Hvannadalshnjúk var ólýsanlegt að standa. Sólin baðaði umhverfið ævintýrabjarma svo mér fannst ég vera stödd í paradís. Þarna uppi á hæsta hjalla Íslands var blankalogn, svo mikið logn að á kveikjara sem kveikt var á stóð loginn beint upp. Það er sjaldan sem maður upplifir svona logn í henni Reykjavík hvað þá meir uppi á þessum tind, gerist örugglega sjaldan ef einhvern tíma. Við dokuðum nokkuð lengi á toppnum, tókum myndir og gónuðum í allar áttir. Það var einhvern vegin ekki manns helsta hugsun að maður ætti núna eftir að koma sér niður þessu rúmu 2100 metra sem maður var búin að príla upp. Átta klukkutíma tók það okkur að fara þessa leið.

Niðurgangurinn var mun leiðinlegri en uppgangurinn. Ég fæ alltaf þennan leiðindasting í annað hnéð þegar ég geng niður, finn reyndar mun minna fyrir honum ef ég get hlaupið niður og þarf ekki að stoppa og spenna hnéð í hverju skrefi. En það var aldeilis ekki hægt núna. Nú var sólin og hitinn búin að bræða snjóbrautina sem við komum upp svo snjórinn var eins og púður, maður sökk og rann í hverju skrefi svo maður stjórnaði ekki alveg hreyfingunum, mjög óskemmtileg ganga sérstaklega þegar maður er svona stuttfættur. Það var líka farið mjög hratt yfir og því var ekkert annað að gera en að spýta í lófana og reyna að fylgja línunni sinni. Það var líka alveg hrikalega gott að komast svona hratt niður þessa leiðindabrekku, á engum tíma vorum við komin af snjónum og á moldarstíginn aftur.

Í 1400 metrum tók þokan aftur við og þar á sama stað kláraði ég síðustu dropana af vökva sem ég var með. 1000 metrar í lækinn og ég var gjörsamlega að skrælna. Það var alveg hrikalega erfitt að horfa á hina sem ekki höfðu drukkið eins mikið og ég eða verið með meira, svolgra í sig vatninu. Shit hvað ég var þyrst. Snjórinn bjargaði versta þorstanum og sopinn frá Sigrúnu frænku var ótrúlega góður. Ég var löngu farin að heyra í vatninu renna áður en við komum að læknum, þar var líka þambað ærlega, næstum líter í einum teig. Þetta skrifast á hitann, ég gerði ekki ráð fyrir þessum gríðarlegu hitasveiflum. Við frænkurnar vorum komnar niður á bílastæði klukkan rétt rúmlega hálf sjö, rétt rúmlega þrettán tímum eftir að við lögðum af stað upp. Fæturnir titruðu ögn og hnéið var aumt, bakpokinn eða beltið hafði náð að gera eitthvert bjánalegt nuddsár á mitt bak og ein tánögl á hægri færi er aðeins bláleidd. Fyrir utan það var ég alveg stálslegin. Nema auðvitað að andlitið á mér var og er brunarúst. Held ég hafi sjaldan brunnið eins illa í framan, get ekki ímyndað mér hvernig ég væri í dag ef ég hefði ekki borið á mig vörn í hverju stoppi. Alveg fáránlegt og hundfúlt að vera svona viðkvæm fyrir gula fíflinu.

Eftir sundferð, grillmat, bjór og íbúfen var lagst í koju og meðvitundin hvarf næstum um leið og hausinn snerti koddann. Þetta var dásamlegur dagur, með skemmtilegu fólki, frábærum fararstjóra sem lét hópinn ráða hraða og för, en ekki sitt egó. Hefði ekkert á móti því að ferðast meira með hann við stjórnvölinn.

Mest og magnaðast er þó að vera búin að fara þessa leið og hafa lent á þessu geggjaða veðri. Smávægilegir hlutir eins og sólbruni spilla ekki gleðinni yfir þessu öllu. Nú er ég alveg með skjálfta fyrir fleiri fjöllum. Get ekki beðið eftir göngum í eyjunni, príli á Hornströndum og vonandi fleiri fjöllum með einhverju fólki sem ég get troðið mér með.

Nú eru manni flest fjöll á Íslandi fær, eða hvað?

Tuesday, May 13, 2008

Æ hvað á ég að segja

Það er svo fyndið hvað ég hef ekkert að segja, en samt finnst mér ég þurfa eitthvað að segja í stað þess að þegja. En hvaða stefnu skal taka?

Mér leiðast alltaf svona ég gerði blogg. Eins og ég sé að endurrita dagbókina í skúffunni. Leiðist ykkur ekki svoleiðis blogg? Þeim sem leiðist það skulu því bara hætta að lesa núna því aftur koma hér nýjustu upplýsingar.

Eftir þrjá daga verð ég komin að rótum Vatnajökuls og stefnan skal tekin þar upp. Upp á toppinn á landi Ísa.

Eftir sjö daga, níu daga, ellefu daga er komið að þreföldu júróvision partýi.

Eftir 24 daga er síðasti vinnudagur í skólanum.

Eftir 25 daga fer ég því út í eyju og verð þar vonandi einhverja tíu daga.

Eftir ca. 6 vikur fer ég svo á Hornstrandir....aftur og aftur :)

Hver segir að maður hafi of mikið að gera :)

Góðar stundir.

Wednesday, May 07, 2008

Hver er þessi msn?

Kristjana ert þú með msn? Ég svara, hmmm af hverju spyrðu að því? Sjáðu sko hérna er miði með msninu mínu, ef þú bætir mér inn á msn-ið þitt þá getum við spjallað saman á netinu. Það er rosalega sniðugt og hægt að setja svona myndir af brosandi körlum og svona. Hefur þú ekki prófað það?

Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að svara þessum sjö ára gamla yndislega nemanda mínum sem vildi ólmur að bætti honum á msn-ið mitt, hafði meira að segja dundað við að skrifa þessa ótrúlega löngu msn adressu sína á miða fyrir mig. Ég ákvað að þykjast ekki nota msn mikið, hver vill svo sem hafa kennarann sinn á msninu þegar fram líða stundir. Samt yndisleg hugsun.

Ég fékk svo bréf í gær frá Kennaraháskólanum þar sem mér var boðin skólavist næsta skólaár. Ótrúlega spennandi, eins og allir bitarnir af pússluspilinu séu að falla á rétta staði. Vantar bara eitt, sem vonandi kemur bráðlega.

Góðar stundir....og ps. ég fer stundum á msn :)

Monday, May 05, 2008

Viðburðaríkur dagur

Þetta leit út fyrir að verða nokkuð venjulegur mánudagur. Töskurnar voru tilbúnar við hurðina, nestið á húninum sjálfum, matur fyrir kisu í dallinum og kattasandurinn tilbúin fyrir heilan dag heima hjá frú Sigríði.

Annað kom á daginn því nokkrum klukkutímum seinna hafði húsfreyjan dvalið langdvölum á klósettinu. Hef sennilegast nælt í þessa slæmu uppgangspest frá mági mínum sem engdist af því sama um helgina. Klukkan rúmlega tíu rankaði ég svo við mér í sólskininu í rúminu mínu við einhver undarleg hljóð. Og hvað haldið þið? Þarna við hliðina á mér stóð frú Sigríður og gubbaði grasi....ég rétt náið að forða sænginni undan gusunni. Vissi ekki að mannfólk gæti smitað ketti af Gullfoss pest. Því var ekkert annað að gera en að henda öllu í þvottavél klukkan tíu og lofta duglega út.

Um hádegið ruddist inn til mín hrikalega stór og ljót og feit hunangsfluga sem ég var lengi að narra í glas og þaðan í klósettið. Hún var svo stór að meira að segja kisa var smeyk, hefði þurft smá andlegan stuðning við þessar aðgerðir.

Ég druslaðist svo á fund eftir hádegið, alveg ótrúlega spennandi dæmi þar sem ég má ekki tala um alveg strax.....segi ykkur og sýni seinna.

Ég sat svo allan eftirmiðdaginn yfir framhaldsskóla ensku með Rúnka frænda sem er að fara í próf.

Friday, May 02, 2008

Sjá dagar koma

Sjá dagar koma ár og aldir líða og engin stöðvar tímans þunga nið. Ég hljóp upp Esju kerlingu á góðum tíma í gær og hlustaði á leiðinni upp á ættjarðarmöppuna í Ipodinum mínum. Dagurinn var alveg ótrúlega fallegur og sólin hlýjaði umhverfinu og göngumönnum um hjartaræturnar, þeir voru líka ófáir sem príluðu þarna upp þennan yndislega dag. Hælsærið sem fékk uppreisn æru í skvísuskónum á Strikinu var aðeins að pirra mig og því hef ég ákveðið að fara ekki fleiri stórar fjallgöngur fyrir Hnúkinn en nú eru einungis fimmtán dagar í þá ferð. Ótrúlega fljótur tíminn að líða núna. Ferðin til Svíþjóðar og Danmerkur var alveg hrikalega skemmtileg. Á margan hátt fróðleg, en á margan hátt bara skemmtileg skemmtun. Við áttum yndislega daga í Kaupmannahöfn, örkuðum Strikið, sötruðum bjór á Nýhöfn og undirrituð náði náttúrulega að brenna alveg svaðalega í þessari fyrstu sól þessa sumars. Ég var eins og röndótt litaspjald með jarðaberjalit og ilmi, en þetta er svo sem ekkert nýtt fyrir mér.

Ég hef fleira að segja frá þessari ferð en núna er einhvern vegin major ritstífla í gangi svo ég kveð bara að sinni. Minni þó á að það eru einungis 22 dagar í þangað Ísland verður búið að vinna Eurovision....Til hamingju Ísland.