Fréttir á blaði
Ég dreif mig í ræktina í morgun, klukkan sex núll núll. Stefnan var tekin á Orkuverið í tíma sem heitir Body camp sem er það sama og herþjálfun. Ég er svo sem ekkert í slæmu formi eftir sumarið, búin að heimsækja fjöll og dali reglulega og skokka þess á milli. En guð minn góður...ég held ég sé með harðssperrur ALLS STAÐAR og ég er ekki ennþá farin að sofa, ég þarf því ábyggilega góða hjálp í fyrramálið við að komast fram úr bælinu, ef ég kemst þá fram úr bælinu!¨
Hræðilegasta fyrirsögn sem sett hefur verið á forsíðu dagsblaðs....Langaði að prófa að drepa mann....hræðilegt, hræðilegt, hræðilegt og hvað er hægt að gera til að gera það enn verra...jú vísa í frétt frá nítján hundruð sjötíu og eitthvað þar sem annar maður hafði prófað þetta líka!!!
Er ekki allt í lagi?

1 comments:
At 8:36 AM, Gugga said…
Djö hvað þú ert dugleg....ohh..við erum svo duglegar....duglegar....duglegar...lalala!!!
Post a Comment
<< Home