Döpur er dráttlaus kona.

...besti páskamálsháttur ever!!!

Tuesday, April 04, 2006

Bloggátak...

Eitt á dag kemur skapinu í lag :)

Ísland sko ögrum skorið,
eg vil sko nefna þig,
sem á brjóstum sko borið,
og blessað sko hefir mig.

Hvað haldið þið að Eggert hafi snúið sér marga hringi í gröfinni eftir þegar hann heyrði þessi ósköp í útvarpinu í dag. Það þyrfti að breyta slagorði þessarar auglýsingaherferðar og snúa því yfir í…..Sko tala minna!!!

Hvernig á ég að losa mig við þennan ógeðslega fresskött sem búinn er að taka sér bólfestu fyrir utan íbúðina mína. Mamma sagði mér að reyna að ná honum og setja sinnep í rassinn á honum….oj….og svo auðvitað henda sinnepinu. Ég get ekki neitað því mikið lengur, en hún fröken Sigríður köttur er gleðikona. Veit ekki hvar mér mistókst í uppeldinu en mun leita ráðgjafar fyrir hana hjá fagaðilum. Skyldi vera til meðferðarfræðingur fyrir ketti með kynlífsfíkn? Þangað til lausn finnst mun ég halda áfram að sofa með uppþvottalög á náttborðinu og vona það að einn daginn þegar ófétið heldur fyrir mér vöku hitti ég hann í augað. Það er örugglega ekki gott að vera með sápu í auganu!!!

2 comments:

  • At 10:04 PM, Blogger Halla said…

    Í minni sveit var nú yfirleitt notað ískalt vatn í fötu á villikettina. Svo er líka hægt að útbúa teygjubyssu, fá sér vatnsbyssu, minkahund nú eða bara káwboyriffil... :)

     
  • At 10:21 PM, Anonymous Anonymous said…

    Vá Halla þú hugsar eins og ég. Ætlaði einmitt að segja þetta sama: skvetta vatni á kvikindið eða bara einfaldlega skjóta það af færi.

     

Post a Comment

<< Home