Döpur er dráttlaus kona.

...besti páskamálsháttur ever!!!

Thursday, November 10, 2005

Tröllaþema!


Stjórnmálaþurs

Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.
Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.

Hvaða tröll ert þú?

2 comments:

  • At 6:00 PM, Blogger Gugga said…

    Hvaða Guðsteinn? Mér finnst nú dáldið fyndið að líkja þér við stjórnmálamann.

     
  • At 3:12 PM, Blogger Tilvera okkar.... said…

    Ég hef ekki hugmynd um það hvar og hver þessi Guðsteinn er...er það kannski pabbi hennar Margrétar Hörpu? og stjórnmálamaður...oj það leiðinlegasta sem ég veit!!!!!!!!!!!

     

Post a Comment

<< Home