Kapalvæðing, formikofila, moskítóflugur, Lási, kínverska dagatalið, janapals, bryggjuhátíð, súrir og sveittir fætur, Sísí, fjallið Þríhyrningur, pöddur, nektarmyndir, Guggus og Janus….
Getið þið ímyndað ykkur hvaða upptalning þetta er? Í gegnum teljarann er hægt að sjá hvaðan fólk kemur inn á síðuna mína og öll þessi orð hér að ofan hafa verið sleginn inn á google og þaðan leitt fólk inn á síðuna mína. Svolítið skemmtilegt finnst ykkur ekki? Að einhver perri í leit að nektarmyndum skuli rata inn á síðuna mína. Finn ekki færsluna sem ég var að nota þetta orð í en….nú er hvort sem er komin önnur slík.
Ég er búin að sitja með tölvuna á hnjánum í mest allan dag. Kláraði fyrst að skrifa ferðasöguna miklu og ætla að pósta henni inn um leið og ég fæ restina af vísunni. Í nokkra tíma er ég svo búin að sitja og reyna að átta mig á hvernig ég get breytt logo í mynd sem mamma getur saumað í saumavélinni sinni. Úfff þetta var nú alveg til að hræra upp í hausnum á mér svona í miðju fríi. En svei mér þá ég held ég sé búin að átta mig á því hvernig þetta er gert. Ég yrði ekki lengi að tapa áttum ef ég ætti að sitja við tölvu allan daginn.

0 comments:
Post a Comment
<< Home