Fróður leikur!
- Vissuð þið í einu glasi af Nektar er dagsskammtur af c-vítamíni?
- Vissuð þið að þegar ég keyri á bílnum hans Sigga sem hefur einkanúmerið Maniac er hlegið að mér?
- Vissuð þið að í dag var keppt í kringlukasti hvorukyns á HM - dæmi nú hver sem vill?
- Vissuð þið að líterinn af bensíni kostar 118 krónur?
- Vissuð þið að það eru einungis 18 dagar þangað til ég fæ sólgulu/rauðu íbúðina mína?
- Vissuð þið að Tinna frænka er alveg að fara að fjölga mannkyninu?
- Vissuð þið að í dag lærði ég á fjórða póstforritið mitt, úr fjórum skólum, þarf ekki að samræma svona kerfi?
- Vissuð þið að ALLIR kennarar og ÖLL grunnskólabörn í Reykjavík eiga sitt netfang á skólanetinu?
- Vissuð þið að þrátt fyrir 25 Kristjönur í kerfinu er netfangið mitt Kristjana? Magnað?
- Vissuð þið að bíómyndin um Herbie er svona blast to the past mynd?
- Vissuð þið að Laugardælahringurinn verður alltaf styttri og styttri með hverjum deginum?
- Vissuð þið að ég kemst ekki í maraþonið því þá er ég að skemmta í brúðkaupi?
- Vissuð þið að ég er búin að selja enn einn námsefnispakkann minn, fer vel í budduna?
- Vissuð þið að ég er í fríi á morgun?
- Vissuð þið að elsku litli bróðir minn varð 23 ára í dag?
- ..og vissið þið ég ætla að sofa í tjaldi í storminum um helgina?
0 comments:
Post a Comment
<< Home